Jónas Már Torfason, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands, hefur nú á haustmisseri 2018 stýrt hlaðvarpsþættinum Umræðan sem Landsbankinn hefur staðið á bak við í samstarfi við Stúdentaráð, þar sem í hverjum þætti hafa verið tekin fyrir ákveðin málefni sem m.a. tengjast stúdentum og ungu fólki og má þar nefna fjármál stúdenta og atvinnumál, en þættina sjálfa má finna á Spotify.
Read MoreÞau okkar sem fylgjast með Villa gegnum samfélagsmiðla vita að hann er sannkallaður gleðigjafi. Í kringum Villa er einhver ótrúlega smitandi gleði. Líklega er hún svona smitandi vegna þess hve einlæg hún er.
Read MoreNú styttist óðum í þann tíma ársins þar sem verslunarferðir verða tíðari enda jólin á næsta leyti og svo útsölur eftir áramótin. Þá getur verið gott að hafa í huga ákveðin atriði í tengslum við réttindi neytenda gagnvart verslunum.
Read MoreMig hefur alltaf langað að ferðast og fara í skiptinám, það er bara eitthvað spennandi við það að búa á nýjum stað, læra á umhverfið og sjálfa sig í leiðinni. Ég ákvað að henda mér ekki of djúpt í laugina og fór, eins og lærdómsfúsir Íslendingar hafa gert í gegnum tíðina, beinustu leið til Kóngsins Köben. Eftir nokkra pappírsvinnu var ég komin á flugvöllinn, ein tilfinningasprengja, eftirvæntingarfull og kvíðin.
Read MorePontus Järvstad er doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í skrifum sínum hefur hann einblínt á fasisma og lauk nýlega skrifum á fræðilegum bókarkafla um andfasisma á Íslandi á millistríðsárunum fram til í dag. Kaflann skrifaði hann ásamt Ragnheiði Kristjánsdóttur, dósent í sagnfræði og mun hann birtast í bókinni ,,Antifascism in Nordic Countries“ sem kemur út um jólin.
Read MoreAðgengismál og málefni fatlaðra eru tíðræð málefni innan háskólasamfélagsins. Það er gömul saga og ný að margt megi bæta í þeim málaflokki, hvað varðar aðgengi að húsnæði, félagslífi og þjónustu. Nú þegar verið er að innleiða nýja hugmyndafræði í lög um þjónustu við þennan þjóðfélagshóp er einnig skiljanlegt að þessi umræða brenni á mörgum einstaklingum.
Read MoreVið Íslendingar erum fræg fyrir að taka hinum íslensku bókajólum hátíðlega. Hér á landi er löng hefð fyrir því að gefa og fá bækur í jólagjöf. Ys og þys einkennir bókabúðir landsins rétt fyrir jól sem er ekki að undra því hillurnar svigna undan rjúkandi heitum og kræsilegum bókum beint úr prentsmiðjunni.
Read More„Fjárráður - félag um fjármálalæsi“ er nýtt félag sem hyggst fræða ungt fólk um fjármál. Emil Dagsson, mastersnemi í fjármálahagfræði, einn stofnandi og formaður félagsins var fenginn til að ræða við Stúdentablaðið um Fjárráð. Hann telur að fólk sem er að taka sínar fyrstu stóru fjármálaákvarðanir vanti oft grundvallarþekkingu á fjármálaumhverfinu á Íslandi og því sé mikilvægt að til sé félag eins og Fjárráður.
Read MoreSólveig Daðadóttir er einn af stjórnarmönnum Q-félagsins og fræðslustýra þess. Hún er 21 árs, á öðru ári í hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands og er jafningjafræðari fyrir Samtökin ‘78. Um daginn mælti ég mér mót við hana á Háskólatorgi og fékk hana til að segja aðeins frá Q-félagi hinsegin stúdenta.
Read More„Þessi ritgerð er mjög viðamikil. Ég er að skoða áhrif Washingtonviskunnar, eða Washington Consensus, sem er stefna í stjórn- og efnahagsmálum sem spratt upp á níunda áratug síðustu aldar, á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Sjóðurinn aðstoðar ríki sem lenda í vandræðum, líkt og í kreppunni á Íslandi,“ segir Tómas Guðjónsson sem nýverið skilaði lokaritgerð til BA-prófs í stjórnmálafræði.
Read MoreHugsar þú stundum um allt það sem þú gætir gert ef þú ættir pening? Langar þig til þess að gera eitthvað skemmtilegt án þess að eyða peningum sem þú þarft í leigu og mat? Stúdentablaðið tók saman ókeypis hluti sem hægt er að gera í Reykjavík fyrir utan það að læra (sem þú ert hvort sem er að borga fyrir).
Read MoreBlaðamenn Stúdentablaðsins ræddu við Bjarna Benediktsson um fjármögnun háskólastigsins í ljósi fjárlagafrumvarps fyrir árið 2019.
Read MoreAda, hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við Háskóla Íslands, var stofnað á dögunum, en þann 11. september var stofnfundur og þar með kosið í fyrstu stjórnina. Stjórnin er fremur stór, en hún samanstendur af 11 konum sem allar eiga það sameiginlegt að vera nemar í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands.
Read MoreEkki fá vöðvabólgu í prófalestrinum! Hér eru nokkur ráð til að forðast slíkt, greinin var unnin með aðstoð Ragnheiðar Ýrar Grétarsdóttur, sjúkraþjálfara og jógakennara.
Read MoreJólabókaflóð ríður yfir. Halldór Armand er tekinn tali og tekið tal berst að ýmsu sem tal á helst ekki að berast að. Og skáldskapur er ræddur: fjármál rithöfunda. Tungumálsins framboð og eftirspurn. Svo ýmislegt: fullnaðarsigur samfélagsmiðla á listrænni miðlum, pólitískur rétttrúnaður, karlar í Morfís.
Read MoreÞað er dimmt úti en ljósaseríur íbúðarhúsanna vísa veginn í átt að háskólasvæðinu. Mandarínuilmur fyllir lesstofuna og einhvers staðar heyrist maltdós opnuð með tilheyrandi smelli. Jólin eru svo sannarlega á næsta leyti og í hugum námsmanna þýðir það aðeins eitt: Prófatímabilið er hafið.
Read MoreReykjavík er holótt borg. Hún hefur margt til brunns að bera, falleg við sundin, menningarborg Íslands, góð atvinnutækifæri og svo mætti lengi telja. En hún er engu að síður holótt. Þá er ekki átt við holurnar í götunum sem má sömuleiðis finna víða annars staðar heldur er átt við að sunnan við meginkjarna borgarinnar, þar sem hjarta Reykjavíkur slær, er auðn.
Read MorePubQuiz Plebbarnir ættu að vera orðnir öllu barsvars áhugafólki góðkunnugir. Hópurinn samanstendur af þremur ungum mönnum, Daníeli Frey Swensyni, Arnóri Steini Ívarsyni og Jóni Pálssyni, sem hafa haldið um það bil 13 barsvör í Stúdentakjallaranum síðastliðin þrjú ár. Barsvörin eru ekki af hefðbundnum toga.
Read More„Mig hefur lengi langað að gefa út bækur sem eru mjög stuttar. Gera eitthvað alveg nýtt á eigin forsendum og hanna eitthvert konsept í kringum það,“ segir Sverrir Norland um nýútgefið bókaknippi sitt. Þetta eru fimm bækur, þrjár stuttar skáldsögur, eitt smásagnasafn og ein ljóðabók, hnýttar saman með snæri.
Read More